Innskráningar kubbur

Auglýsing

Reisan

Við ætlum okkur að halda úti smá bloggi allt frá undirbúningi og þar til við setjum dótið okkar aftur inn í skáp þegar heim er komið.
Njótið

Myndasíðan okkar

Heimkoma

Hvað er klukkan í

Gamla landinu

Kina

Vietnam

Kambodiu

Thailandi

Malasiu

Indonesiu, a Bali

Astraliu, Austur

Astraliu, Nordur og Sudur

Astraliu, Vestur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leit

Fleiri myndir!!!

16. febrúar 2008 klukkan 17:39
Vitum ekki hvort nokkur fylgist með síðunni lengur en við vorum að enda við að setja inn hátt í 50 myndir á myndasíðuna okkar.
Raggi og Linda
1 athugasemd

Komin a Klakann :)

21. desember 2007 klukkan 21:58
Eins og sjá má á íslensku stöfunum (sem er mjög erfitt að venja sig á að byrja að nota aftur!) þá erum við komin heim! Við lentum hálftíma á undan áætlun síðast liðinn laugardag eftir langt ferðalag og mjög takmarkaðann svefn seinustu tvo sólarhringana.
     Það er alveg ótrúlega gott ad vera komin heim. Það voru margir búnir ad orða við okkur bæði hér heima og í Ástralíu að það yrði erfitt fyrir okkar ad koma heim í skammdegið eftir alla sólina og góða veðrið síðustu sjö mánuðina. Þrátt fyrir að skammdegið og slagviðrið standist seint samanburð vid sumarylinn og sólina í Ástralíu erum við alveg í skýjunum. Við erum að sjálfsögðu búin að þamba kranavatn í lítravís, njótum þess í botn ad hafa skipt lökum út fyrir sængurnar okkar (sem var sárt saknad) og anda ad okkur fersku lofti. Toppurinn var samt að hitta aftur fjölskyldu og vini sem tóku vel á móti okkur.
    
     Jólaundirbúningur er með minnsta móti hjá okkur núna. Áður en við lögðum af stað í vor ákváðum við að í staðinn fyrir að gefa stórar jólagjafir í ár myndum við gefa 50 þúsund í hjálparstarf í einhverjum af þeim löndum sem ætlunin var að heimsækja. Það sem okkur fannst standa upp úr var aðdáunarvert starf eins manns i Kambódiu sem við fengum að kynnast með heimsókn i jarðsprengjusafn á hans vegum. Það er hægt að lesa meira um sjóðinn sem við ætlum að gefa í og starf Aki Ra á eftirfarandi heimasíðu
www.landmine-relief-fund.com.
     Þið verðið því að fyrirgefa þó við sleppum jólakortunum í ár og jólagjafirnar verði með minnsta móti Brosandi

Þetta er að öllum líkindum síðasta færslan okkar á þessu bloggi þó við setjum inn restina af myndunum frá Ástralíu við fyrsta tækifæri. Við viljum því þakka öllum sem fylgdust með okkur í gegnum reisuna. Það var gott að vita af öllum sem deildu ævintýrinu með okkur og gerði það að verkum að okkur fannst við ekki eins ein í heiminum Hlæjandi


Óskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári!

Takk fyrir okkur!
Raggi og Linda
2 athugasemdir

13 timar i ad vid forum i loftid!

13. desember 2007 klukkan 04:01

Nu er hadegi hja okkur og vid forum ut a flugvoll a midnaetti og fljugum hedan fra Perth til Kuala Lumpur klukkan tvo i nott. Thar bidum vid i fimm tima thar til vid tokum vel til London. Vid verdum i London yfir nott svo vid stondum nu i lappirnar thegar vid lendum a klakanum enda verdum vid a flugi i yfir 21 tima!
     Nick kom heim i nott og er ekkert buinn ad sofa eftir ad hafa verid a ferdalagi i yfir tvo solarhringa. Hann aetlar ekkert ad sofa fyrr en vid erum farin, grilladi meira ad segja morgunmat fyrir okkur i morgun (beikon, egg, pylsur og bakadar baunir...). Vid erum svo a leidinni i biltur eitthvad nordur og endum i mat i kvold med theim og vinum theirra ,sem vid forum i mat til um daginn, a stad sem selur alls kyns serastralskan mat eins og emu, kengurur og vonandi krokodil.
     Vid erum annars alveg tilbuin eftir ad hafa keypt aukatosku i gaer undir allt draslid sem vid komum ekki fyrir Ullandi enda brunum vid liklega beint ut a flugvoll thegar vid komum heim i kvold.
     Thad er svo skritid ad thessu aevintyri se ad ljuka og vid vitum ekki hvernig vid eigum ad vera. Vid hlokkum svo til ad koma heim og hitta alla en um leid erum vid a halfgerdum bommer yfir ad thetta se allt ad taka enda. Vid erum samt otrulega thakklat fyrir ad hafa fengid ad sja svona mikid af heiminum og hitta allt thetta frabaera folk sem vid hofum komis i kynni vid a leidinni. 

Sjaumst ekki a morgun heldur hinn!

    

Raggi og Linda
7 athugasemdir

Heimleid!

11. desember 2007 klukkan 11:19

Tha er ad koma ad thvi! Sjo manada otrulegu aevintyri senn ad ljuka og vid erum kosveitt vid ad thvo, sortera, henda og reyna ad troda ollum farangrinum i bakpokana (merkilegt hvad hann er duglegur vid ad margfaldast...)! 
     Seinustu tvaer vikur hafa verid storskemmtilegar og frabaer endir a reisunni. I Astraliu er mikill rigur a milli addaenda bilategundanna Ford og Holden sem badar eru framleiddar herna. Gestgjafar okkar eru dyggir studningsmenn Ford og dugleg ad maeta a V8 supercar kappakstra. A sunnudaginn i sidustu viku voru svo urslit i einni keppninni og maettu yfir tuttugu manns hingad til ad fylgjast med kappakstrinum. Thad var grillad upp ur hadegi og svo horfdu allir a urstlitin i sjonvarpinu og var gaman ad fylgjast med, serstaklega thar sem thad voru studningsmenn baedi Ford og Holden i husinu.
     Thridjudaginn i seinustu viku forum vid til Rottnest, eyju rett fyrir utan Perth. Thar leigdum vid okkur hjol og hjoludum hringinn i kringum eyjuna. Eyjan er rosalega falleg og er heimili pokadyrs sem kallast quakkas, en vid saum ekkert slikt. Thad sem vid saum hins vegar var eitt stykki Dugite snak sem skreid a milli lappanna okkar thegar vid vorum ad borda. Thad voru tveir fararstjorar sem oskrudu a okkur ad setja lappirnar upp thegar their sau thetta en vid fottudum thad ekki fyrr en snakurinn var kominn framhja, sem betur fer thvi hann hefdi getad faelst og bitid okkur. Thetta eru nokkud eitradir snakar og tharf madur spitalavist ef madur er bitinn, vid sluppum thvi vel. 
Claire ser vel um okkur en hun baud okkur aftur i nudd og snyrtingu hja nemunum sinum sem eru ad safna timum. A fostudaginn var okkur svo bodid i mat til besta vinar Claire, sem hun er buin ad thekkja i yfir tuttugu ar, og konunnar hans. Thau eru mjog almennileg og skemmtilegir karakterar. Hann er mikill motorhjolakarl eins og Nick, en Nick var medal annars forsprakki motorhjolasamtaka a Nyja Sjalandi i morg ar alveg fra thvi hann var 15 ara! 
     Um helgina forum vid svo til Wedge nalaegt Lancelin med Nikki og Chris. Thar eru risastorar sandoldur sem na yfir stort svaedi og thangad fer folk og gerir thad sem vid erum von ad gera i snjo! Brunar um a jeppunum sinum, festist og eydir heilmiklum tima i ad losa bilana aftur, brunar um a fjorhjolum og litlum motorhjolum og rennir ser a sandbrettum. Chris a gamlan pallbil sem buid er ad setja risastora 5.6L V8 vel i og gerir alveg sitt gagn. Thau keyrdu til Lancelin a pallbilnum og vid eltum a Ford-sportbilnum hennar Nikki (sem er lika med V8 vel) thar sem thad eru bara tvo farthegasaeti i pallbilnum. Thegar vid komum i baeinn skildum vid sportbilinn eftir og vid stukkum aftan a pallinn. Rett fyrir utan baeinn, mitt i sandoldunum er Wedge eins og litid sumarbustadahverfi nema thetta eru meira eins og barujarnsskyli sem eru eins einfold og haegt er. Tveir vinahopar Chris voru staddir thar i sitt hvorum skurnum og thangad var ferdinni heitid. Vid brunudum eftir strondinni og okkur var ekkert alveg sama thegar vid vorum komin upp i 90 km hrada eftir strondinni og heldum okkur eins fast og vid gatum! Vid hittum vini hans adur en vid forum i sma utsynis- og torfaeruferd um sandoldurnar. I thetta sinn trod Linda ser inn i bil med Nikki og Chris og Raggi fekk ad fljota med einum af vinum Chris sem leyfdi honum meira ad segja ad profa ad keyraBrosandi Vid grilludum svo med odrum vinum Chris og sotrudum ol fram eftir nottu. Eftir nokkur utsynis- og myndastopp daginn eftir heldum vid svo aftur til Lancelin. Chris syndi okkur adeins hvad billinn getur og vorum vid med hjartad i buxunum a medan.
     Vid forum til Fremantle i gaer i steikjandi hita. Vid entumst ekki vid ad labba um og forum thvi i Fremantle fangelsid sem var hamarksoryggisfangelsi fra nitjandu old fram til 1991. Thetta var mjog fraedandi tur sem vid forum i um fangelsid og med skemmtilegum fararstjora.
     Vid erum engan vegin ad atta okkur a ad vid seum a leidinni heim. I thetta skipti erum vid ekki ad pakka til ad fara a naesta afangastad heldur a endastoppid i thetta skipti. Hlokkum ad sjalfsogdu heilmikid til og vonandi komumst vid i jolastudid thegar vid komum i jolaljosin a klakanum. Her sjaum vid eina og eina jolaseriu en hofum ekki heyrt eitt jolalag i utvarpinu. Vid hjalpudum Claire um daginn ad setja upp jolaseriu vid sundlaugina en thad er bara alls ekkert jolalegt i 39 gradu hita og steikjandi sol eins og var tha!

Raggi og Linda
2 athugasemdir

Astralskar mottokur

29. nóvember 2007 klukkan 05:05
Thad eru komnar nyjar myndir!!!

Vid komum til Perth 23. novemer eftir ad hafa gist i Pemberton, Busselton og Rockingham a leid okkar fra Denmark. Thad markverdasta a leidinni var Tree Top Walk nalaegt Walpole thar sem vid lobbudum eftir 600 m langri gongubru sem fer a milli trjanna og yfir thau allt upp i 40 m haed. Thad var otrulegt ad sja skoginn fra thessu sjonarhorni og vid forum lika i Ancient Empire Walk thar sem var medal annars haegt ad labba i gegnum trein thar sem thau hofdu klofnad i sundur.
     Claire tok okkur opnum ormum og vid lifum eins og kongafolk hja manneskju sem varla thekkir okkur. Thau bua i uthverfi Perth i voda notalegu husi med risastorri lod (sem er nausyn undir alla fornbilana og motorhjolin :) ) med sundlaug i gardinum og tvo French Mastiff hunda. Vid nadum ekki i Claire thegar vid komum i baeinn en vorum med heimilisfangid og aetludum bara ad banka upp a og athuga hvort hun vaeri heima en hrokludumst i burtu thegar thessir risahundar maettu okkur vigalegir vid hlidid Hissa En Paris og Hutch toku okkur fljotlega i satt og nenna varla ad standa a faetur thegar vid komum heim nuna. Vid verdum ad setja inn myndir fljotlega af bilnum sem thau lanudu okkur, vid faum enga sma athygli runtandi um goturnar a thessum sjuklega flotta Mustang! Ekki nog med gistinguna og bilinn heldur fekk Raggi fritt nudd i fyrradag og Linda nudd, hand- og fotsnyrtingu a annarri heilsustodinni hennar Claire. Hun a og rekur tvaer svokalladar Wellness Centers thar sem hun er med alls kyns snyrtimedferdir, nudd og natturulaekningar og um 42 nema lika. Thad vantar stundum folk fyrir nemana til ad aefa sig a og vid erum meira en til i ad adstoda med thad Brosandi Nick er ad vinna a oliuborpalli i Egyptalandi nuna og kemur ekki heim fyrr en daginn adur en vid forum en vid erum buin ad hitta dottir theirra, Nikki og Chris kaerastann hennar nokkrum sinnum en thau eru a svipudum aldri og vid og hid hressasta folk. Vid grilludum oll saman a laugardagskvoldid og forum i biltur a sunnudeginum og satum nidri vid hofnina a vinsaelum stad og drukkum bjor og forum svo ut ad borda um kvoldid. Vid hofum svo sjalf farid i midbaeinn og i Kings Park og grasagardanna sem eru mjog fallegir og med frabaeru utsyni yfir borgina og a adalstrond borgarinnar sem ekki er haegt ad kvarta yfir. Vedrid her i Perth er med thvi heitara sem vid hofum lent i her i Astraliu og hefur farid upp i 39 gradur sidan vid komum svo ullarbolirnir og ulpurnar eru ekki i notkun lengur....allavega ekki fyrr en vid leggjum i hann heim a klakann.
   Hahaha ja eitt sem vid verdum ad minnast a i lokin... okkur tokst ad fa hradasekt a campervaninum okkar Ullandi (Thad tok ekki nema tvo manudi fyrir sektina ad komast til Islands). Thad er bara ekki haegt annad en hlaegja ad thessu thvi vid prumpudumst um vegina a engum hrada. Baedi af thvi hann eyddi svo miklu ef vid forum yfir 90 og thegar vid forum upp brekkur la vid ad annad okkar thyrfti ad fara ut ad yta. Vid fengum fingurinn oftar en einu sinni fra odrum gedvondum bilstjorum sem fannst vid fara heldur haegt. En ja thetta var bara fyndid og ekki svo illa sloppid midad vid 11.000 km akstur!

Skellum orugglega inn einu bloggi i vidbot adur en vid leggjum upp i langferd heim a Fronid eftir 14 daga (lendum eftir 16 daga)!!!
 
Raggi og Linda
7 athugasemdir

Hvorki tre ne vatn!

20. nóvember 2007 klukkan 02:12

Nullarbor var skemmtilegri en okkur hefdi getad grunad. Thetta var mikil upplifun thvi allir sem voru a Nullarbor voru einhvernvegin saman a ferdalagi. Allir sem vid maettum a veginum heilsudu manni, m.a.s. sumir vorubilstjorar. Thad eina sem var ekki eins gott var bensinverdid. Odyrast hofum vid borgad i 1,12A$ (venjulega ca. 1,25A$) en tharna var thetta allt upp i 1,78A$ sem er samt bara 96.12 kr. Fyrsta daginn forum vid fra Ceduna eftir ad hafa birgt okkur upp af dosagraenmeti og vatni og yfirfarid bilinn VEL. Vid vorum med allt i allt ca. 70 litra Ullandi af vatni en Nullarbor leidin heitir a frumbyggjamali "hin vatnslausa" en Nullarbor er ur latinu "nullus arbor" eda "trjalausa". Slettan faer ekki nema 200 mm af regni a ari og undanfarid hafa verid thurrkar og ekki allir til i ad gefa vatnid sitt. En ja vid keyrdum fra Ceduna og stoppudum einhverja 50 km fra WA/SA Bordertown, alveg a klettabrun med ekkert nema nokkurra sentimetra haa runna eins langt og augad eygdi. Thetta var otrulegt, og solsetrid med theim betri sem madur hefur sed. Annan daginn keyrdum vid ca. 600 km og endudum stutt fra Balladonia. Vid thurftum ad fara i gegnum sottkvi a rikjamorkum sudur og vestur Astraliu thar sem vid thurftum ad skilja vid halfan hvitlauk, allt annad hofdum vid etid kvoldinu adur. Vid keyrdum lika lengsta beina veg i Astraliu, 146,6 km af beinum veg... mjooog beinum vegi. Thad var tho hlidarvindur svo vid hofdum eitthvad ad gera vid styrid. Thetta er leid sem madur tharf ad fara til ad geta imyndad ser, thad er svo margt ad sja tho thad se ekkert a leidinni, hversu mikil vit sem er i thvi.
Fra Balladoniu okum vid svo rakleitt til Norseman og svo til Esperance thar sem vid hengum a strondinni i kaefandi hita (atti ad vera 31 grada en vid vorum ekki ad trua thvi) og forum daginn eftir i 18 gradum og rigningu. Vid forum langa leid (ruma 500 km) til Albany og vorum thar i sol um kvoldid en um morguninn eftir var komid rok og um hadegi var rigning og rok og frekar kalt. Nuna erum vid komin i Danaveldi her i Denmark. Vid komum i roki og rigningu og forum nu a eftir i godu vedri. Vid roltum ruma 10 km i gaer eftir fraegri gonguleid sem tekur samt 8 vikur ad labba alla og lentum i hellings skurum a leidinni med hagleljum. Vedrid hefur ekki beint verid daemigert fyrir Astraliu eins og madur imyndar ser. Vid vonum bara ad thad batni eftir thvi sem nordar dregur og verdi bongoblida thegar vid komum a endanum til Perth Svalur

Raggi og Linda
4 athugasemdir

Thangad liggur beinn og breidur vegur...

14. nóvember 2007 klukkan 23:33

Vid hofdum thad otrulega gott i Adelaide sem er mjog thaegileg borg med skemmtilegum gongugotum. Thad var hatid sem kalladist "Celebtation of Love" svo thad voru alls kyns skemmtiatridi a gotumarkadinum sem vid forum a a sunnudagsmorgninum og vid saum meira ad segja Gay Pride skrudgonguna Brosandi
Fra borginni heldum vid sidan i Barossadalinn sem er helsta vinraektunarherad Astraliu og thad var aedi, einn af hapunktum ferdarinnar. Vid byrjudum a thvi ad skella okkur i thyrluflug thar sem vid fengum frabaert utsyni yfir svaedid. Thetta var mjog fyndid thvi vid keyrdum fram hja skillti thar sem var bodid upp a hraeodyrt thyrluflug. Vid horfdum hvort a annad, snerum svo vid og nokkrum minutum seinna vorum vid komin upp i thyrlu. Thetta var bara um fimm minutna flug en alveg geggjad gaman, serstaklega thar sem hvorugt okkur hefur flogid med thyrlu adur Svalur
Barossadalurinn er olysanlega fallegur skemmtileg stemning. A manudagsmorgninum klaeddum vid okkur i skarri fotin og heldum af stad i vinsmokkun! Forum fyrst i Jacob's Creek thar sem vel var tekid a moti okkur thratt fyrir ad vid vissum ekkert hvad vid vaerum ad gera. Vid vorum heillengi thar og smokkudum i kringum tiu sortir. Gatum ekki yfirgefid stadinn an thess ad taka med okkur eina hvitvinsflosku af einstoku hvitvini sem er bara selt tharna a stadnum og var nanast gefins. Naesti afangastadur var svo Peter Lehman sem vid thekktum ad heiman. Eftir vinsmokkunina thar keyptum vid okkur bakka med heimabokudu braudi, ostum, olivum og fleira finerii og sitthvort vinglasid og settumst utt i eitt rjodrir fyrir utan. Vid letum thar vid sitja enda fullkominn dagur og takmork fyrir thvi hvad bragdlaukarnir geta tekid vid miklu. A leidinni ut ur dalnum morguninn eftir stoppudum vid svo i Yalumba sem vid konnudumst lika vid ad heiman og er ein elsta vinekran a svaedinu. Thad var eiginlega thaegilegasta heimsoknin enda mjog fair og madurinn sem var ad adstoda okkur frabaer. Vid gatum spurt alveg helling af byrjendaspurningum sem hann svaradi med glodu gedi.
Vid erum nu komin alla leidin til Ceduna eftir marathonakstur sidustu tvo daga og thad thydir ad Nullarbor er ad skella a. Nullarbor er svo gott sem ekkert i 1200 km!!! Vid erum sem sagt ad fara ad keyra lengsta beina kafla i Astraliu, beint, beint , beint i thrja til fjora daga og engir baeir eda budir a leidinni! Vid erum thvi buin ad stutfylla bilinn af vatni, erum ad fara ad fylla bilinn af mat svo vid aettum ad vera i godum malum. Megid endilega hugsa vel til okkar Glottandi
Vid skilum svo bilnum i Pert thann 24. november og Claire og Nick sem vid hittum i Vietnam-Kambodiuferdinni eru svo frabaer ad thau eru buin ad bjoda okkur ad gista hja ser thar til vid fljugum heim. Thau eru med sundlaug i gardinum og Nick er buinn ad bjoda okkur ad hafa Mustangin sinn til afnota til ad fara a strondina (er dellukarl og a helling af fornbilum og motorhljolum). Thetta er nattla ekkert nema geggjad enda frabaert folk a ferdinni!

Kaerar kvedjur ur kaefandi hita!
Slettuulfarnir

Raggi og Linda
6 athugasemdir

Melbourne til Adelaide

10. nóvember 2007 klukkan 07:32
Vid erum nuna i jolastudi i Adelaide. Thad er allt ad verda vitlaust og thad i midjum november ut af jolunum!!! I dag var jolaskrudganga eda eitthvad slikt sem vid blessunarlega misstum af, tho thad se agaett ad vera minntur a hvad thad er stutt i jolin thvi ta verdum vid komin heim.
En fra thvi sem adur var horfid hofum vid faerst sunnar og svo aftur mikid nordar sem er gott thvi herna er komid mun heitara vedurfar ( nordur = heitara, sudur = kaldara, olikt thvi sem er heima  ). Vid forum fra Melbourne a leid okkar nidur a " The Great Ocean Road" sem er mjog falleg leid, i godu vedri. Vid fengum ekki gott vedur heldur kulda, rigningu og a koflum svartathoku! Vid forum i gegnum Tourquay sem er byrjunin a leidinni og fyrir Cape Otway thar sem vegurinn liggur vel inn i landid og upp i fjoll. Thad hafdi verid skuravedur og lagskyjad fyrir en thegar vid forum tharna upp eftir lentum vid i svartathoku, thviku urhelli og roki. Vid vorum ekki "happy campers" eins og Astralirnir kalla thad. Vid vonudum bara ad thad vaeri skarra thegar vid kaemum nidur ad Postulunum tolf sem eru drangar uti i sjo, og eiginlega thad sem flesta langar ad sja a thessari leid. Osk okkar raettist og vid fengum skitsaemilegt vedur til ad skoda tha en ekkert merkilegra en thad. Vid endudum svo a ad leggja rett vid adalveginn, svona eiginlega a utsynisstoppi vid klettana rett vestan vid Port Campbell. Vid vorum bara med bilinn eins og hann passadi best a staedid en thurftum ad snua honum um nottina thegar vid heldum ad hann aetladi ad fara a hlidina. Thad hafdi nefninlega farid ad hvessa svona hressilega um kvoldid og nad myndarlegum stormi um nottina, svo miklum ad vid svafum nanast ekkert. Vid keyrdum halflummuleg afram morguninn eftir og hofdum enga orku i ad skoda allt a leidinni. Forum tho ut i Loch Ard Gorge sem er fallegt gljufur ut i sjo. Thar fyrir utan strandadi skip atjanhundrun og surkal sem het Loch Ard og forust allir nema tveir farthegar af 55. Vid heldum afram og i gegnum Warrnambool og endudum i caravan park i Port Fairy (vissum reyndar ekki hvada baer thetta var fyrr en daginn eftir, bara pinu syfjud ). Tha fyrst heyrdum vid ad stormurinn hefdi verid sa versti i ruman aratug. Great Ocean Road lokadist ut af grjotskridu og strakur lest i baenum Lorne thegar trjagrein fell a tjaldid hans. Ekki skrytid ad vid attum erfitt med svefn en vid nadum tho ad sofna og svafum fra hadegi til klukkan sex um kvoldid og voktum tha bara i thrja tima, thetta er erfitt lif Hlæjandi En daginn eftir forum vid nidur i bae. Thetta er vodalega snotur baer sem var upphaflega hval- og selveidibaer med hus fra midri 19. old og stendur baedi vid a og sjo. Vid forum ut i litla eyju og roltum hring i thokkalega godu vedri. A leidinni heim a staedi reyndum vid ad finna fisk til ad elda en thad kom okkur reglulega a ovart ad thad var ekki haegt ad kaupa ferskan fisk i ollum baenum. Venjulega er lika 1/15 af hilluplassi i morkudum fratekinn fyrir fisk ef hann er til. um kvoldid hittum vid tvemenningana og nagranna okkar Mark og Neve (rangt skrifad Irskt stelpunafn) sem vid spjolludum heilmikid vid og eyddum kvoldinu med vid spilamennsku. Um morguninn brunudum vid svo ut ur Victoria og inn i South Australia. Vid gerdum stutt stopp i Portland thar sem vid aetludum ad kaupa i matinn en haettum vid thvi thad ma ekki fara med graenmeti eda avexti inn i South Astralia ut af avaxtaflugu (fruitfly) sem er vist faraldur a sumum stodum og mikid gert til ad koma i veg fyrir utbreydslu, m.a.s. 2.500 AUD sekt fyrir ad svindla. Vid endudum seinni partinn i litlum notalegum bae sem heitir Robe. Thar lobbudum vid eftir strondinni og Raggi nadi meira ad segja ad dorga pinulitid a bryggjunni med veidihjoli sem Eddie fram Melbourne gaf honum. Vid fundum fisk i Mt. Gambier og grilludum hann um kvoldid en okkur hafdi langad i fisk i langan tima. Fra Robe la leid okkar til Fleurieu skagans. A leidinni stoppudum vid til ad rolta inni i thjodgardi. Stigurinn la framhja fallegu steinefnavatni sem er bleikt a litinn. Vid hofdum keyrt fram hja tveim skinkum a leidinni ad stignum og saum thann thridja a gongunni (skinkur er edla sem er med hala sem litur ut eins og hausinn). Vid forum i gegnum Strathalbyn og endudum i Victor Harbor. Eftir godan naetursvefn forum vid svo ut i og kringum Granite Island sem er tengd vid landid med gongu-/sporvagnsbru. Thar er haegt ad sja litlar morgaesir eftir solsetur en vid saum bara hreidrin theirra. Vid brunudum fyrir skagann med hadegismatar- og dorgstoppi i Second Valley. Vid stoppudum svo til ad keyra og labba a strondinni i litlum bae rett adur en vid stoppudum i McLaren Vale. Vid fengum okkar fyrsta skammt af Fish'n'Chips og vorum pakksodd eftir halfan skammt. Vid erum bara ordin von matarminni kvoldmat. Vid heldum svo inn i Adelaide daginn eftir og erum nu i glaesilegum gardi vid strondina. Vid nadum ad fara i fyrsta skipti i langan tima i solbad og lobbudum eftir strondinni i ruma tvo tima an thess ad sja fyrir endann a henni. Nu eru ekki nema tvaer vikur i ad vid skilum bilnum svo vid verdum ad fara ad gefa i enda eigum vid eftir stora askorun sem er ad fara yfir Nullarbor slettuna...

P.s. Vorum ad hlada inn nokkrum myndum fra Astraliu!
Raggi og Linda
3 athugasemdir

Komum aftur a klakann i naesta manudi!

01. nóvember 2007 klukkan 07:23
Otrulegt hvad timinn er fljotur ad lida. Nu er kominn november, vid erum buin ad bua i bilnum okkur i ruman manud  og fljugum aftur heim i naesta manudi! Thad hefur allt gengid eins og i sogu fra seinasta bloggi og helst i frettum ad vid forum yfir 5000 km markid fyrir nokkrum dogum  , svona til samanburdar tha eru um 3400 km fra Kaupmannahofn til Athenu!!! Vid verdum ad ollum likindum komin yfir 10 thusund km markid thegar vid komum til Perth, svo thetta er engin sma vegalengd sem vid erum ad ferdast.
     Eftir sidasta blogg heldum vid afram sem leid la til Sydney og a leidinni stoppudum vid a Koalaspitala i Port Macquarie. Thar saum vid nokkra koalabirni sem gatu ekki lengur lifad uti i  natturinni, voru annad hvort ordnir allt of gamlir og hrumir eda hofdu ekki nad ser ad fullu eftir ad hafa lent fyrir bil. Okkur langadi svo ad vinna tharna sem sjalfbodalidar og yfirmadurinn a stadnum var svo jakvadur en hann gat thvi midur ekki tekid vid sjalfbodalidum nema their gaetu stoppad i ad minnsta kosti manud svo thad gekk thvi midur ekki.
     Vid komum svo til Sydney 19. oktober a versta tima, fostudagseftirmiddegi! Thad gekk samt merkilega vel og vid villtumst alveg otrulega litid adur en vid fundum husid hans Ollie. Thar var tekid vel a moti okkur thratt fyrir ad vid hittum alveg einstaklega illa a. Ollie byr i litlu radhusi med thremur odrum haskolanemum og vid maettum i midri profatid og var Ollie greyid ekki buinn ad sofa i 48 tima thegar vid maettum a svaedid enda ad fara ad skila lokaritgerdinni sinni Ullandi Vid svafum i bilnum okkar fyrir utan husid i thrjar naetur og vorum med lykil ad husinu og gatum notad alla adstodu thar og verid eins og heima hja okkur. Thad var otrulega skemmtileg stemning i thessu litla husi og gaman ad upplifa hana. Ein stelpan sem byr tharna var i starfsthjalfun og thvi ekki i profum svo vid hengum og horfdum a video med henni a kvoldin sem var aedi enda hofum vid ekki gert thad i halft ar! Vid reyndum annars ad vera sem minnst fyrir og tokum lest nidur i midbae Sydney a morgnana og vorum thar mest allan daginn. Vid nutum borgarinnar i botn, thad var olysanlegt ad standa nidri a hofn med Sydney Harbour Bridge a adra hond og operuhusid fraega hinum megin. Fengum lika mjog fallegt vedur thratt fyrir ad thad vaeri svolitid svalt. Vid lobbudum um grasagardinn sem var einstakur og a laugadeginum voru ad minnsta kosti fimm brudkaup i gangi thar. Vid forum a gotumarkad a sunnudeginum, fengum okkur kaffi og bjor og fylgdumst med mannlifinu. Kiktum lika a listasafnid i grasagardinum thar sem thad var fritt, sem er alltaf gott.
     Ja a medan vid munum.... vid forum fram ur sumrinu nokkrum dogum adur en vid komum til Sydney. Thad er vor i Astraliu nuna en thad er natturulega gridarleg fjarlaegd a milli nyrdsta og sydsta odda Astraliu svo thad vard alltaf svalara eftir thvi sem vid keyrdum sunnar. Sidustu tvaer vikurnar hefur thvi verid ad mestu skyjad og oft svalur vindur og hitinn svona i kringum 20 gradurnar. Thad hefur thvi stundum ordid ansi kalt a nottunni og vid hofum sofid i ullarbolunum okkar og sokkum ofan i svefnpokunum Brosandi Ekki thad ad thetta se einhver vodalegur kuldi, vid erum bara med svo litid af hlyjum fotum.
     En afram med ferdasoguna... a manudagsmorguninn heldum vid svo afram sudur eftir ad hafa kvatt Ollie med virktum og thakkad fyrir okkur. Vid runtudum upp i Blue Mountains thjodgardinn sem Ollie hafdi maelt med og forum i sma gonguferd thar og nutum utsynisisn. Endudum svo i Shell Harbour, sem er rett sunnan vid Sydney, um kvoldid thar sem vid grilludum kengurukjot sem smakkadist einstaklega vel. Vid slokudum a i Shell Harbour i thrja daga i rigningu og kulda en nadum samt ad vigja frisbidiskinn sem Ollie hafdi gefid okkur. Fra Shell Harbour tokum vid stefnuna til Canberra og tokum storan krok a leidinni af thvi vid gatum ekki annad en keyrt i gegnum bae sem heitir Ulladulla! Nofnin a sumum baejunum herna eru alveg oendanlega fyndin og vid veltum stundum fyrir okkur a hverju folk hefur verid thegar baejunum voru gegin nofn. Vid komum til Canberra thann 26. oktober sem er vodalega litil og notaleg borg. Thad er varla haegt ad trua thvi ad thetta se hofudborgin i svona storu landi en thad er kannski ekkert skrytid thegar tillit er tekid til thess ad hun var bokstaflega buin til af thvi thad var ekki haegt ad komast ad samkomulagi um hvort Sydney eda Melbourne aetti ad vera hofudborgin! Vid gatum meira ad segja runtad um borgina a bilnum okkar og thad var ekkert mal ad finna staedi. Thad er ekki einu sinni lestarkerfi tharna svo thad er allt odruvisi en i hinum borgunum thar sem thad er engin leid ad komast neitt nema i lest eda straeto.  Vid forum a Stridsminjasafnid sem er vist eitt besta safn i heimi og thad var meira ad segja fritt! Thad var otrulega skemmtilegt og vid hefdum audveldlega geta eytt nokkrum dogum tharna, thad var svo mikid ad skoda en hofdum thvi midur bara ruma tvo tima adur en safninu lokadi.
Daginn eftir, sem var laugadagur, var svo baendamarkadur inni a svaedinu thar sem tjaldstaedid var(svona svipad og Laugadalurinn) thar sem baendur ur sveitunum i kring komu med afurdir sinar. Thad var otrulega skemmtilegt og vid nadum ad trodfylla bilinn af graenmeti, avoxtum og heimabokudu braudi Hlæjandi Forum lika a risaedlusafn i baenum sem var mjog fraedandi og var med nokkrar beinagrindur til synis. Annars for timinn i Canberra i thad sem okkur thykir skemmtilegast, rolta um og skoda mannlifid, vid roltum m.a. medfram vatninu sem Canberra er byggd i kringum og saum svarta svani med ungana sina. Vid yfirgafum svo hofudborgina a sunnudagsmorgninum og runtudum afram sudur. Vid forum medal annars i gegnum SKIDABAEINN Cooma (hver hefdi truad thvi ad thad vaeri skidasvaedi i Astraliu) og thad er vist ekki svo langt sidan ad thad haetti ad vera skidafaeri. Vid keyrdum inn i nytt riki thann daginn, Victoria, og gistum um kvoldid vid okkar einkastrond! Thad er alveg endalaust mikid af fallegum strondum herna vid sudurstrondina og tharna hofdum vid ut af fyrir okkur hatt i 5 km strond og engin manneskja sjaanleg! Vid faerdum okkur svo i Caravan park daginn eftir sem stendur vid Woodside Beach thar sem vid stoppudum i tvo daga. Nu erum vid stodd i Melbourne og likar storvel. Erum i Caravan park taepa 20 km fra midborginni og ferdumst a milli med straeto. Vid komum bara hingad i gaerkvoldi svo vid hofum litid nad ad skoda en thad er voda notaleg stemning herna, mikid af kaffihusum og gongugotum og hellingur ad skoda.

Vorum ad klara ad setja inn myndir fra Indonesiu svo nu aettu ad fara ad streyma inn myndir fra Astraliu fljotlega Svalur

Raggi og Linda
7 athugasemdir

Myndadaela

27. október 2007 klukkan 08:10
Og enn daelast myndirnar inn! Nu hofum vid skellt fleiri myndum af Komodoaevintyrinu okkar. Njotid!
Raggi og Linda
5 athugasemdir